„Eins og Jürgen Klopp“

Pep Guardiola og Erling Haaland kátir eftir leikinn í dag.
Pep Guardiola og Erling Haaland kátir eftir leikinn í dag. AFP/Adrian Dennis

Manchester City vann dramatískan sigur gegn Wolves, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni í dag. John Stones skoraði sigurmark City sem kom á fimmtu mínútu í uppbótartíma.

„Við erum ekki vanir því að vinna leiki í lokin, eins og Jürgen Klopp hjá Liverpool,“ sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, í viðtali eftir leik.

Sigurinn í dag þýðir að City er ósigrað í 31 leik í ensku úrvalsdeildinni sem er nýtt met hjá félaginu. Síðasta tapið kom gegn Aston Villa í desember árið 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert