Michael Keane varnarmaður Everton skoraði glæsilegt mark í sigri í útisigri Everton á Ipswich, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Iliman Ndiaye kom Everton yfir í fyrri hálfleik en í þeim seinni bætti Keane öðru marki við.
Þá nelgdi hann boltanum í þaknetið eins og alvöru framherji.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.