Enska knattspyrnusambandið hefur kært Mohammed Kudus leikmann West Ham eftir rauða spjaldið sem hann fékk er liðið fékk skell, 4:1, gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Kudus missti stjórn á skapi sínu og sló til bæði Micky van de Ven og Pape Matar Sarr. Hann fékk gult spjald að launum, sem var síðan uppfært í rautt spjald eftir skoðun í VAR.
Ljóst er að Kudus á yfir höfði sér að minnsta kosti þriggja leikja bann, sem gæti verið lengt. Þá gæti hann einnig verið sektaður fyrir athæfið.