Forráðamenn úkraínska knattspyrnfélagsins Shakhtar Donetsk halda því fram að Chelsea kunni ekki á Mykhailo Mudryk kantmann liðsins.
Mudryk var utan hóps í tapi Chelsea fyrir Liverpool, 2:1, um síðustu helgi en hann hefur ekki fundið sig síðan hann gekk í raðir félagsins í janúar 2023.
Chelsea greiddi Shakhtar-liðinu stórar upphæðir fyrir Úkraínumanninn og vann meðal annars Arsenal í kapphlaupinu um hann.