De Bruyne enn frá

Belginn Kevin De Bruyne er einn af aðalmönnum Manchester City.
Belginn Kevin De Bruyne er einn af aðalmönnum Manchester City. AFP/Adrian Dennis

Kevin De Bruyne verður ekki með Englandsmeisturum Manchester City í heimaleik liðsins gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun. 

Þetta staðfesti Pep Guardiola, stjóri liðsins, á blaðmannafundi í dag. Þá verður Kyle Walker ekki heldur með City-liðinu. 

De Bruyne meiddist í leik City í Meistaradeildinni gegn Inter Mílanó fyrir mánuði og hefur ekki náð sér aftur síðan þá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert