Mohamed Salah bjargaði stigi fyrir Liverpool þegar liðið heimsótti Arsenal í stórleik 9. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Emirates-vellinum í Lundúnum í dag.
Salah jafnaði metin fyrir Liverpool á 81. mínútu en leiknum lauk með jafntefli, 2:2.
Arsenal komst tvívegis yfir í leiknum með mörkum frá þeim Bukayo Saka og Mikel Merino en Virgil van Dijk jafnaði metin fyrir Liverpool í fyrri hálfleik.