Hefur ekki strax störf hjá United

Rúben Amorim.
Rúben Amorim. AFP/Patrícia de Melo Moreira

Rúben Amorim færist æ nær því að skrifa undir sem knattspyrnustjóri Manchester United en mun þó ekki taka strax við stjórnartaumunum.

Sky Sports greinir frá því að Man. United gæti tilkynnt formlega um ráðningu Portúgalans í dag en að hann myndi ekki hefja störf fyrr en í næsta landsleikjahléi.

Amorim er knattspyrnustjóri Sporting í Lissabon og þarf samkvæmt samningi sínum að vinna 30 daga uppsagnarfrest.

Líklegt þykir hins vegar að félögin komist að málamiðlun um að hann hefji störf hjá Rauðu djöflunum um miðjan nóvember þegar næsti landsleikjagluggi fer í hönd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert