Spænska stórveldið horfir til Liverpool

Mohamed Salah.
Mohamed Salah. AFP/Paul Ellis

Forráðamenn knattspyrnuliðs Barcelona á Spáni eru með augastað á egypska knattspyrnumanninum Mohamed Salah.

Það er spænski miðillinn Sport sem greinir frá þessu en Salah, sem er 32 ára gamall, er samningsbundinn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Samningur Salah við Liverpool rennur út næsta sumar og gæti hann þá farið frítt frá félaginu en hann hefur verið algjör lykilmaður á Anfield frá því hann gekk til liðs við félagið frá Roma, sumarið 2017.

Barcelona reyndi að semja við Salah árið 2021 þegar hann átti lítið eftir af samningi sínum vð Liverpool en hann ákvað þá að framlengja samning sinn í Bítlaborginni.

Salah á að baki 364 leiki fyrir Liverpool í öllum keppnum þar sem hann hefur skorað 220 mörk en hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert