Rúben Dias, varnarmaður Englandsmeistara Manchester City í knattspyrnu karla, vill að almenningur vanmeti City-liðið.
City hefur unnið sex af síðustu sjö Englandsmeistaratitlum en liðið er í öðru sæti með 23 stig, fimm stigum minna en topplið Liverpool, þegar ellefu umferðir eru búnar.
Þá er lykilmaður liðsins Rodri, sem vann gullboltann, meiddur út tímabilið.
Dias var hins vegar ómyrkur í máli er hann var spurður út í titilbaráttuna af ESPN.
„Endilega vanmetið okkur,“ sagði hann einfaldlega.