Arne Slot fékk skýr skilaboð frá eigendum Liverpool

Luis Díaz og Arne Slot fara yfir málin á æfingu …
Luis Díaz og Arne Slot fara yfir málin á æfingu Liverpool. AFP/Peter Powell

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, fékk skýr skilaboð frá eigendum félagsins þegar hann tók við liðinu af Jürgen Klopp síðasta sumar.

Það er The Athletic sem greinir frá þessu en eitt af helstu verkefnum hans, þegar hann tók við liðinu, var að bæta spilamennsku fjögurra leikmanna liðsins.

Leikmennirnir sem umræðir eru þeir Ibrahima Konaté, Luis Díaz, Dominik Szoboszlai og Ryan Gravenberch.

Lykilmenn á tímabilinu

Konaté, Díaz og Gravenberch hafa allir verið í stórum hlutverkum hjá Liverpool á tímabilinu og hafa Díaz og Gravenberch verið á meðal bestu manna liðsins.

Szoboszlai hefur hins vegar ekki náð að sýna sitt rétta andlit og hefur þurft að gera sér það að góðu að verma varamannabekk liðsins í undanförnum leikjum.

Liverpool hefur byrjað tímabilið frábærlega undir stjórn Slots og situr á toppi bæði úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert