Ella Toone, lykilkona Manchester United og enska landsliðsins í fótbolta, er frá út árið vegna meiðsla.
DailyMail segir frá en búist er við því að Toone verði frá í að minnsta kosti sex vikur.
Hún mun hvorki spila með Manchester United né enska landsliðinu meira á þessu ári en England mætir Bandaríkjunum og Sviss í tveimur landsleikjum um næstu mánaðamót.