Brasilíski knattspyrnumaðurinn Antony, kantmaður Manchester United, má finna sér nýtt félag þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Enska dagblaðið Daily Star greinir frá því að Antony sé á förum finnist félag sem vill semja við hann.
Kantmaðurinn hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans þegar hann var keyptur á 81,3 milljónir punda, um 14 milljarða íslenskra króna, frá Ajax sumarið 2022.
Antony er með 200.000 pund, 34,7 milljónir króna, í vikulaun og er Man. United opið fyrir bæði kaup- og lánstilboðum í Brassann, sem er 24 ára gamall.