Líklegast er að Frank Lampard verði næsti þjálfari karlaliðs enska knattspyrnufélagsins Coventry.
SkySports greinir frá en í frétt miðilsins kemur fram að viðræður Lampards við Coventry séu langt komnar.
Lampard stýrði síðast Chelsea í annað sinn í maí í fyrra en hann hefur einnig stýrt Derby og Everton.