Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur samþykkt að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Það er The Athletic sem greinir frá þessu en Guardiola, sem er 53 ára gamall, verður samningslaus næsta sumar.
Hann hefur hins vegar samþykkt að framlengja samning sinn um eitt ár, með möguleika á árs framlengingu að því er fram kemur í frétt The Athletic.
Guardiola tók við stjórnartaumunum hjá City sumarið 2016 og hefur gert liðið sex sinnum að Englandsmeisturum á þeim tíma og einu sinni að Evrópumeisturum.