Hákon heiðraður með söng eftir leik

Hákon Rafn Valdimarsson.
Hákon Rafn Valdimarsson. Ljósmynd/Brentford

Stuðningsmenn Brentford heiðruðu Hákon Rafn Valdimarsson með söng í leikslok eftir að hann kom inn á í markalausu jafntefli gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld.

Þetta var fyrsti leikur Hákons í ensku úrvalsdeildinni en aðalmarkvörður Brentford, Mark Flekken, meiddist og kom Hákon inn á í hans stað og hélt hreinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið af stuðningsmönnum Brentford syngja Valdimarsson eftir leik. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka