Martröð Manchester United heldur áfram

André Onana, markvörður Manchester United, svekktur eftir leik.
André Onana, markvörður Manchester United, svekktur eftir leik. AFP/Darren Staples

Newcastle átti ekki í miklum vandræðum með að vinna Manchester United, 2:0, í 19. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í kvöld.

Manchester United er í 14. sæti með 22 stig, aðeins sjö stigum á undan fallsæti en Newcastle er í fimmta með 32 eftir frábæra leiki undanfarið. 

Það má með sanni segja að fyrri hálfleikurinn hafi verið algjör einstefna. Strax á 4. mínútu leiksins fékk Lewis Hall boltann vinstra megin og gaf hann fyrir markið. Þar var Alexander Isak algjörlega óvaldaður í teignum og skallaði boltann í netið. Hans sjötta mark í jafnmörgum leikjum í röð og hans tólfta mark á tímabilinu.

Joelinton tvöfaldaði forystu Newcastle á Old Trafford.
Joelinton tvöfaldaði forystu Newcastle á Old Trafford. AFP/Darren Staples

Joelinton átti næsta færi á 11. mínútu leiksins þegar Anthony Gordon fór ansi illa með Noussair Mazraoui, keyrði inn í teiginn og gaf boltann fyrir á Joelinton sem skaut rétt fram hjá markinu.

Þremur mínútum seinna var Gordon sjálfur nálægt því að skora þegar skot hans fór rétt fram hjá markinu.

Á 19. mínútu var aftur komið að Joelinton og í þetta skiptið nýtti hann færið sitt. Anthony Gordon gaf boltann fyrir markið á Joelinton sem skallaði boltann í netið og leikurinn var orðinn algjör martröð fyrir heimamenn í Manchester United.

Newcastle-menn fagna marki Alexanders Isaks.
Newcastle-menn fagna marki Alexanders Isaks. AFP/Darren Staples

Á 26. mínútu leiksins fengu þeir Sandro Tonali og Lewis Hall frábær skotfæri fyrir utan teig United. Skot Tonali fór fram hjá en Newcastle vann boltann strax í markspyrnunni og Lewis Hall skaut síðan beint á André Onana markvörð United.

Á 32. mínútu fékk Sandro Tonali algjört dauðafæri en skot hans fór í stöng og André Onana reyndi ekki einu sinni að verja skotið.

Í kjölfarið neyddist Rúben Amorim stjóri United til að gera breytingu enda gat spilamennska United vart versnað. Hann tók því Joshua Zirkzee af velli og setti Kobbie Mainoo inn á í hans stað.

Fyrsta skot United í leiknum kom á 34. mínútu leiksins þegar Rasmus Höjlund skaut boltanum fram hjá úr ákjósanlegu færi. 5 mínútum síðar skaut síðan Casemiro hátt yfir markið.

Besta færi United í fyrri hálfleik kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Kobbi Mainoo gaf boltann á Casemiro sem skaut viðstöðulaust fram hjá marki Newcastle.

Staðan í hálfleik var 2:0 fyrir gestina í Newcastle.

Rúben Amorim á hliðarlínunni.
Rúben Amorim á hliðarlínunni. AFP/Darren Staples

Leikmenn United mættu talsvert ferskari inn í seinni hálfleikinn og byrjuðu strax að ógna marki Newcastle sem gaf af sér fyrstu hornspyrnu United í leiknum.

Varmaðurinn Kobbie Mainoo átti fyrsta marktækifæri seinni hálfleiks þegar skot hans fór í varnarmann. Á 59. mínútu kom besta færi United í leiknum þegar skalli Harry Maguire fór í innanverða stöngina.

Eftir þetta róaðist leikurinn aðeins að því frátöldu að varamaðurinn Leny Yoro átti frábæran skalla rétt fram hjá marki Newcastle eftir hornspyrnu frá Cristian Eriksen.

Rúben Amorim gerði þrjár skiptingar í seinni hálfleik og bætti í sóknarleik liðsins. Það skilaði litlu þó að það megi ekki taka það af heimaliðinu að það spilaði talsvert betur í seinni hálfleik.

Niðurstaðan á Old Trafford var sanngjarn 2:0 sigur Newcastle og Rúben Amorim á ærið verkefni fyrir höndum í janúarglugganum enda er lið hans aðeins 7 stigum frá fallsæti.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Man. United 0:2 Newcastle opna loka
90. mín. Þremur mínútum bætt við venjulegan leiktíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert