Frá næstu tvo mánuðina

Pau Torres er lykilmaður hjá Aston Villa.
Pau Torres er lykilmaður hjá Aston Villa. AFP/Oli Scarff

Spænski knattspyrnumaðurinn Pau Torres verður frá keppni næstu tvo mánuðina eftir að hafa meiðst í jafntefli Aston Villa gegn Brighton, 2:2, síðasta mánudagskvöld. 

Þetta staðfesti Unai Emery stjóri Villa á blaðamannafundi í dag. 

Pau Torres þurfti að fara af velli eftir aðeins tuttugu mínútna leik og mun nú missa af mikilvægum tímapunkti tímabilsins.

Hann gekk í raðir Villa-liðsins sumarið 2023 og var frábær er liðið komst í Meistaradeildina síðasta vor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert