Sá nýi getur mætt Liverpool

Antonin Kinsky er genginn til liðs við Tottenham.
Antonin Kinsky er genginn til liðs við Tottenham. Ljósmynd/Tottenham

Enska knattspyrnufélagið Tottenham hefur fengið keppnisleyfi fyrir sinn nýjasta leikmann, tékkneska markvörðinn Antonin Kinský.

Hann verður þar með gjaldgengur með liðinu þegar það mætir Liverpool á heimavelli á miðvikudagskvöldið en það er fyrri leikur liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins.

Tottenham hefur verið í vandræðum vegna meiðsla, m.a. hjá markvörðum sínum, en Brandon Austin lék sinn fyrsta leik í marki Lundúnaliðsins þegar það mætti Newcastle á laugardaginn. Þá voru bæði  Guglielmo Vicario og Fraser Forster fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Kinský er 21 árs gamall og á að baki eitt og hálft ár í efstu deild í Tékklandi með Slavia Prag og Pardubice.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert