Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var ekki sáttur við hvernig liðið varðist þegar það fékk á sig mörkin tvö í jafntefli gegn erkifjendunum í Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í gærkvöldi.
„Hvernig við fengum bæði mörkin á okkur var óásættanlegt og markaðist af leti. Þetta á ekki að gerast. Ég held við verðum að vera hreinskilnir við okkur sjálfa, þetta hefði getað verið enn verra ef þeir hefðu nýtt síðasta færið sitt,“ sagði van Dijk í viðtali á samfélagsmiðlum deildarinnar.
Leiknum lauk 2:2 þar sem öll mörkin komu í síðari hálfleik. Man. United náði forystunni, Liverpool sneri taflinu við en gestirnir jöfnuðu svo metin.
„Þetta var leikur sem var uppfullur af tilfinningum. Við lentum 0:1 undir, gerðum frábærlega í að snúa taflinu við og svo hefðum við átt að stjórna leiknum miklu betur.
Við vorum slakari en oft áður og misstum boltann á erfiðum stöðum þar sem við vorum opnari. Svo fáum við á okkur annað markið og það voru mikil vonbrigði hversu auðveldlega það fór í netið.
Við verðum að taka þessu og leggja hart að okkur eins og við höfum gert allt tímabilið og einbeita okkur að næsta leik,“ bætti hollenski miðvörðurinn við.