Fyrsta tap Arsenal á heimavelli í langan tíma

Kai Havertz, sóknarmaður Arsenal, svekktur eftir að hafa klúðrað dauðafæri …
Kai Havertz, sóknarmaður Arsenal, svekktur eftir að hafa klúðrað dauðafæri í gærkvöldi. AFP/Glyn Kirk

Arsenal mátti sætta sig við 2:0-tap fyrir Newcastle United í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu karla á Emirates-leikvanginum í Lundúnum í gærkvöldi.

Langt var um liðið síðan Arsenal tapaði síðast leik á heimavelli í öllum keppnum. Það hafði síðast gerst tæpum níu mánuðum fyrr, um miðjan apríl á síðasta ári.

Þá töpuðu Skytturnar einnig 2:0 en þá fyrir Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, sem reyndist dýrkeypt í baráttunni við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn.

Newcastle og Arsenal mætast í síðari leik liðanna í undanúrslitum deildabikarsins eftir tæpan mánuð, 5. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert