Potter tekur við í Lundúnum

Graham Potter tekur við West Ham.
Graham Potter tekur við West Ham. AFP/Darren Staples

Enska knattspyrnufélagið West Ham mun ráða Graham Potter sem eftirmann Julen Lopetegui sem var rekinn fyrr í dag.

The Guardian greinir frá því að Potter hafi samþykkt tveggja og hálfs árs samning forráðamanna West Ham.

Mun liðið æfa undir stjórn Englendingsins í fyrsta skipti á morgun og hann verður á hliðarlínunni er West Ham mætir Aston Villa í bikarnum á föstudag.

Potter stýrði síðast Chelsea en var rekinn í apríl 2023. Þar á undan stýrði hann Brighton við góðan orðstír, eftir sérlega góðan árangur með Östersund í Svíþjóð.

Félagið vildi fyrst um sinn aðeins bjóða Potter samning út tímabilið en eftir viðræður var samþykkt að veita honum lengri samning.

West Ham er í 14. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 20 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert