Rashford nálgast Mílan

Marcus Rashford er á förum frá Manchester United.
Marcus Rashford er á förum frá Manchester United. AFP/Darren Staples

Umboðsmaður enska knattspyrnumannsins Marcus Rashfords ferðaðist til Mílanóborgar í dag til að ræða við forráðamenn ítalska félagsins AC Milan um lán á leikmanninum út yfirstandandi tímabil.

Milan hefur ekki efni á að kaupa Rashford af Manchester United og yrði hann því lánaður til ítalska félagsins, á meðan United borgar enn stóran hluta launa sóknarmannsins.

Rashford myndi ekki ganga auðveldlega inn í byrjunarlið Milanóliðsins þar sem portúgalska stjarnan Rafael Leão er í uppáhaldsstöðu Rashfords á vinstri kantinum.

Dortmund sýndi Rashford einnig áhuga en leikmaðurinn er of dýr fyrir þýska félagið, samkvæmt heimildum Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert