Kominn aftur til Liverpool

Kaide Gordon fagnar sögulegu marki sínu fyrir Liverpool fyrir þremur …
Kaide Gordon fagnar sögulegu marki sínu fyrir Liverpool fyrir þremur árum síðan. AFP

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur kallað enska kantmanninn Kaide Gordon til baka úr láni frá Norwich City, sem leikur í B-deildinni.

Gordon, sem er tvítugur, var ekki í stóru hlutverki hjá Norwich fyrri hluta tímabils þar sem hann lék tíu leiki, aðeins einn í byrjunarliði, og skoraði eitt mark.

Alls á Gordon sjö leiki að baki fyrir aðallið Liverpool og er yngsti markaskorari í ensku bikarkeppninni í sögu félagsins, en hann skoraði gegn Shrewsbury Town í janúar 2022 þegar Gordon var 17 ára og 96 daga gamall.

Hann þótti þá mikið efni en spilaði lítið sem ekkert í tvö ár á eftir vegna vaxtarverkja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert