United hafnaði 6,9 milljarða tilboði

Alejandro Garnacho í leik með Manchester United gegn Arsenal á …
Alejandro Garnacho í leik með Manchester United gegn Arsenal á sunnudag. AFP/Ian Kington

Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur hafnað kauptilboði ítalska félagsins Napólí í argentínska kantmanninn Alejandro Garnacho. Tilboðið hljóðaði upp á 40 milljónir punda, 6,9 milljarða íslenskra króna.

Enska blaðið Mirror greinir frá því að Garnacho sé efstur á óskalista ítalska toppliðsins, sem vill kaupa vængmann í janúarglugganum þar sem Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia er á leið til Parísar SG á 70 milljónir punda.

Samkvæmt Mirror vill hinn tvítugi Garnacho fara frá Man. United og líst vel á Napólí sem næsta áfangastað á ferlinum.

Enska félagið mun hins vegar ekki hlusta á tilboð undir 60 milljónum punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert