Margrét Lára: Unun að horfa á hann

Margrét Lára Viðarsdóttir og Eiður Smári Guðjohnsen hrósuðu Trent Alexander-Arnold í hástert eftir að hann átti stórleik fyrir Liverpool í 4:1-sigri á Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

„Það er þessi ofboðslega mýkt og tilfinning sem hann hefur í hægri fætinum. Það er unun að horfa á það,“ sagði Margrét Lára.

„Ég held að það hafi aldrei verið neitt spurningamerki um hans gæði. Sendingagetu, gæði á boltanum. Að finna hlaupin, akkúrat þessa réttu vigt í sendingum og annað,“ bætti Eiður Smári við.

Umræðuna um Alexander-Arnold og Liverpool-liðið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert