Dani á leið til Manchester United

Patrick Dorgu í leik með Lecce.
Patrick Dorgu í leik með Lecce. AFP/Carlo Hermann

Manchester United er langt komið með að ganga frá kaupum á danska bakverðinum Patrick Dorgu frá Lecce á Ítalíu, en þar leikur hann við hlið Þóris Jóhanns Helgasonar í A-deildinni.

Dorgu er tvítugur vinstri b akvörður sem kom til Lecce frá Nordsjælland árið 2022 og hefur spilað 53 leiki í A-deildinni. Hann hefur þegar leikið fjóra A-landsleiki fyrir Danmörku og skorað eitt mark.

Samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano er samkomulag við Lecce í höfn, sem og langtímasamningur við bakvörðinn, og reiknað er með því að hann verði orðinn leikmaður United eftir sólarhring eða svo. 

Kaupverðið sé um 30 milljón evrur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert