Egypski knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah gæti gengið til liðs við Al Hilal í Sádi-Arabíu, fari svo að hann yfirgefi herbúðir enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool í sumar.
Það er The Telegraph sem greinir frá þessu en Salah, sem er 32 ára gamall, verður samningslaus í sumar og getur þá farið frítt frá Liverpool.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð sóknarmannsins sem hefur verið einn af bestu leikmönnum liðsins á tímabilinu en hann hefur skorað 23 mörk í 32 leikjum í öllum keppnum, ásamt því að leggja upp 17 mörk.
Salah hefur verið sterklega orðaður við félög í Sádi-Arabíu undanfarin tvö tímabil en brasilíska stórstjarnan Neymar er á förum frá Al Hilal eftir tvö ár í herbúðum félagsins og vilja forráðamenn sádiarabíska félagsins fá aðra stórstjörnu inn fyrir Neymar.
Salah gekk til liðs við Liverpool frá Roma, sumarið 2017, fyrir 37 milljónir punda en hann á að baki 381 leik fyrir félagið, 234 mörk og 105 stoðsendingar.