Enska knattspyrnufélagið Aston Villa hefur hafnað 60 milljón punda kauptilboði Arsenal í sóknarmanninn Ollie Watkins.
Daily Mail og ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greina frá.
Watkins á þrjú ár eftir af samningi sínum við Villa, sem er í þann mund að selja annan sóknarmann, Jhon Durán, til Al-Nassr í Sádi-Arabíu.
Viðræður milli félaganna munu halda áfram á næstu dögum þar sem Arsenal vonast til að klófesta Englendinginn áður en félagaskiptaglugganum verður lokað næstkomandi mánudagskvöld.
Í viðtali við Sports Gazette árið 2020, þegar Watkins lék með Brentford, sagðist hann dreyma um að spila fyrir Arsenal.