Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að sekta Aston Villa um 30 þúsund pund og Newcastle United um 20 þúsund pund vegna óláta í hálfleik í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á öðrum degi jóla.
Í hálfleik sauð upp úr þegar kastaðist í kekki milli Jasons Tindalls, aðstoðarþjálfara Newcastle, og Victor Manas, leikgreinanda hjá Villa.
Tindall og Manas fengu báðir rautt spjald fyrir sinn þátt í látunum.
Bæði félögin játuðu sök líkt og Manas en Tindall neitaði sök. Félögin voru því sektuð, Manas fær tveggja leikja bann og 4.000 punda sekt en Tindall sleppur við frekari refsingu.