Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Manchester United, er allt annað en sáttur við sóknarmanninn Marcus Rashford, sem hefur verið úti í kuldanum hjá félaginu síðan Rúben Amorim tók við liðinu.
Amorim hefur sjálfur sagt að Rashford þurfi að breyta hugsunarhætti sínum til að eiga möguleika á að vera í einhvers konar hlutverki undir stjórn þess portúgalska.
„Ég skil ekki svona. Leikmenn sem geta ekki æft almennilega og fara í fýlu,“ sagði Keane í Stick to Football-hlaðvarpinu.
„Hann getur ekki æft eins og maður og vill fara en það er enn meiri ástæða til að æfa meira og vera allavega í formi hjá nýju félagi. Hann ætti að skammast sín fyrir þetta hugarfar,“ bætti Keane við.