Sleit krossband á Anfield

Wes Burns borinn af velli á Anfield á laugardag.
Wes Burns borinn af velli á Anfield á laugardag. AFP/Paul Ellis

Velski knattspyrnumaðurinn Wes Burns varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné í leik með liði sínu Ipswich Town gegn Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Burns braut á Cody Gakpo og lá sjálfur sárþjáður eftir. Strax var óttast það versta og var hann borinn af velli.

Kieran McKenna, knattspyrnustjóri Ipswich, staðfesti á fréttamannafundi í dag að Burns hafi slitið krossband og muni gangast undir skurðaðgerð.

Tímabili kantmannsins er því lokið og gott betur þar sem það tekur íþróttamenn venjulega um níu mánuði eða meira að jafna sig á slíkum meiðslum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert