Slot vill láta breyta reglunum

Arne Slot vill breyta reglum um fjölda varamanna.
Arne Slot vill breyta reglum um fjölda varamanna. AFP/Paul Ellis

Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool vill breyta reglunum um fjölda varamanna í ensku úrvalsdeildinni.

Hollendingurinn vill að varamönnum deildarinnar verði fjölgað úr níu og í tólf vegna mikils álags liða sem spila í Evrópukeppni.

Slot ræddi hugmyndina á blaðamannafundi í dag. Var Hollendingurinn ósáttur við að ekki var pláss fyrir Joe Gomez og Federico Chiesa í leikmannahópnum sem mætti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert