Manchester City – Newcastle sýndur beint á mbl.is

Manchester City tekur á móti Newcastle í dag.
Manchester City tekur á móti Newcastle í dag. AFP/Oli Scarff

Leikur Manchester City og Newcastle í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Etihad-vellinum í Manchester, verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.00.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.00.

City er í 5. sæti deildarinnar með 41 stig en Newcastle er í 6. sætinu með 41 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Manchester City og Newcastle í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert