Egyptinn Omar Marmoush skoraði þrennu fyrir Manchester City er liðið lagði Newcastle, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Öll þrjú mörk Marmoush komu í fyrri hálfleik en James McAtee bætti við fjórða marki City á 84. mínútu.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.