Fjörugt fjögurra marka jafntefli í Birmingham

Trent Alexander-Arnold fagnar eftir að hafa jafnað leikinn í kvöld.
Trent Alexander-Arnold fagnar eftir að hafa jafnað leikinn í kvöld. AFP/Paul Ellis

Aston Villa tók á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Leikið var á Villa Park vellinum í Birmingham og endaði leikurinn með fjögurra marka jafntefli, 2:2.

Eftir leikinn er Aston Villa í 9. sæti með 39 stig en Liverpool er á toppi deildarinnar með 61 stig, átta stigum á undan Arsenal sem á þó leik til góða.

Leikurinn fór fjörlega af stað og var mikil barátta úti á vellinum áður en Mohamed Salah kom Liverpool í forystu á 29. mínútu. Andrés García, hægri bakvörður Aston Villa, gerði sig þá sekan um slæm mistök en sending hans fór beint fyrir fætur Diogo Jota. Jota gerði vel og lagði boltann á Mohamed Salah sem setti boltann í þaknetið og gestirnir komnir yfir.

Mohamed Salah fagnar eftir að hafa skorað fyrsta mark leiksins.
Mohamed Salah fagnar eftir að hafa skorað fyrsta mark leiksins. AFP/Paul Ellis

Forystan entist ekki lengi en níu mínútum síðar hafði Youri Tielemans jafnað fyrir heimamenn. Eftir sendingu utan af kanti og mikinn skallatennis og darraðardans í vítateig Liverpool þá endaði boltinn hjá Tielemans. Belginn lét þá vaða með vinstri fæti og endaði boltinn í netinu, óverjandi fyrir Alisson í marki gestanna.

Það var síðan á þriðju mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks sem heimamenn komust yfir. Lucas Digne átti þá frábæra fyrirgjöf frá vinstri sem endaði á kollinum á Ollie Watkins. Enski framherjinn skallaði boltann fullkomlega í markið framhjá hjálparlausum Alisson og heimamenn búnir að snúa leiknum sér í vil.

Ollie Watkins fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum.
Ollie Watkins fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum. AFP/Paul Ellis

Craig Pawson, dómari leiksins, flautaði til hálfleiks nokkrum andartökum síðar og leiddi Aston Villa með einu marki, 2:1, í hálfleik.

Liverpool liðið var töluvert betra í upphafi seinni hálfleiks og hafði öll völd á vellinum. Það skilaði sér á 61. mínútu þegar Trent Alexander-Arnold jafnaði leikinn. Hann og Mohamed Salah spiluðu þá sín á milli sem endaði með því að Alexander-Arnold fékk boltann rétt fyrir utan vítateig Aston Villa. Hann lét þá vaða að marki, skotið fór af Tyrone Mings og þaðan framhjá Emiliano Martinez í marki heimamanna.

Liðin skiptust á að sækja það sem eftir lifði leiks en ekkert gekk að koma boltanum í netið og endaði leikurinn því með fjögurra marka jafntefli, 2:2.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aston Villa 2:2 Liverpool opna loka
90. mín. Aston Villa fær hornspyrnu +2
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert