Arsenal – West Ham sýndur beint á mbl.is

Mikel Merino og liðsfélagar hans í Arsenal fá West Ham …
Mikel Merino og liðsfélagar hans í Arsenal fá West Ham í heimsókn í Lundúnarslag í dag. AFP/Justin Tallis

Leikur Arsenal og West Ham í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Emirates-vellinum í Lundúnum, verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.00.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.00.

Arsenal er í 2. sæti deildarinnar með 53 stig en West Ham er í 16. sætinu með 41 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Arsenal og West Ham í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert