Dramatískt jafntefli í Bítlaborginni

Patrick Dorgu í United með boltann. Jesper Lindström verst.
Patrick Dorgu í United með boltann. Jesper Lindström verst. AFP/Paul Ellis

Everton og Manchester United gerðu jafntefli, 2:2, í 26. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á Goodison Park í dag. 

Everton er í 12. sæti með 31 stig en Manchester United er í 15. sæti með 30 stig. 

Beto kom Everton yfir á 19. mínútu með marki eftir mikinn usla í teig United. Þá skaut hann í grasið og þaðan hafnaði boltinn í þaknetinu, 1:0. 

Abdoulaye Doucouré tvöfaldaði forystu Everton-manna á 33. mínútu. Þá átti Jack Harrison skot sem André Onana varði. Doucouré var mun sterkari en Maguire í baráttunni um seinni boltann og stangaði hann í netið, 2:0. 

Manchester United kom til baka í seinni hálfleik. Á 72. mínútu minnkaði Bruno Fernandes muninn með marki beint úr aukaspyrnu en þá skaut hann fast í markmannshornið, 2:1. 

Manuel Ugarte jafnaði síðan metin á 80. mínútu með glæsilegu skoti á lofti, 2:2, og allt jafnt. 

Everton fékk víti undir blálok leiks þegar að Ashley Young lét sig detta inn í teignum eftir baráttu við Matthijs de Ligt og Harry Maguire. Andy Madley dómari var hins vegar settur í skjáinn og dró dóminn til baka, við litla hrifningu stuðningsmanna Everton. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Arsenal 0:1 West Ham opna
90. mín. James Ward-Prowse (West Ham) fær gult spjald Braut á Raya sem lék á hann eftir hornið.

Leiklýsing

Everton 2:2 Man. United opna loka
90. mín. Chido Obi (Man. United) fær gult spjald
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert