Markvörðurinn sprettharðastur (myndskeið)

David Raya náði boltanum á undan James Ward-Prowse eftir að …
David Raya náði boltanum á undan James Ward-Prowse eftir að Spánverjinn brá sér í sóknina. AFP/Justin Tallis

Knattspyrnumaðurinn David Raya, markvörður Arsenal, var sprettharðastur allra í leik liðsins gegn West Ham United í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.

Raya brá sér í sóknina undir blálokin þegar Arsenal fékk hornspyrnu og reyndi að jafna metin, en leiknum lauk með 1:0-sigri Hamranna.

Leikmenn West Ham komu boltanum frá og þá tók Raya á rás til þess að koma í veg fyrir að gestirnir myndu skora aftur, sem honum tókst með því að vinna boltann á miðjum vellinum.

Sprettur spænska markvarðarins mældist á tæplega 33 kílómetra hraða og mældist enginn sprettharðari en Raya í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert