Gat ekki horft á vítakeppnina

Nuno Espírito Santo átti erfitt með að horfa.
Nuno Espírito Santo átti erfitt með að horfa. AFP/Andy Buchanan

Nuno Espír­ito Santo, knatt­spyrn­u­stjóri Nott­ing­ham For­est, viður­kenn­ir að hann hafi ekki getað horft á víta­spyrnu­keppn­ina gegn Ipswich Town þegar For­est hafði bet­ur í 16-liða úr­slit­um ensku bik­ar­keppn­inn­ar í gær­kvöldi.

Staðan eft­ir venju­leg­an leiktíma og fram­leng­ingu var 1:1 og For­est vann svo 5:4 í víta­spyrnu­keppn­inni eft­ir að hafa skorað úr öll­um spyrn­um sín­um. Matz Sels, markvörður For­est, varði svo spyrnu Jacks Tayl­ors og tryggði liðinu sig­ur.

„Fyr­ir hvern ein­asta drátt í bik­ar­keppn­inni þurf­um við að æfa víta­spyrn­ur og við héld­um sömu upp­röðun og gegn Ex­eter. Við stóðum okk­ur mjög vel og þetta voru góð víti.

Þetta er hluti af und­ir­bún­ingn­um. Á sama tíma eru markverðirn­ir að æfa sig og fá eins mikl­ar upp­lýs­ing­ar og hægt er. Þetta er skuld­bind­ing. En þetta er alls ekki þægi­legt.

Kvíði, tauga­veiklun og frek­ari blanda af til­finn­ing­um. Ég reyni að horfa ekki og bíð bara eft­ir hávaðanum! Markvarsl­an hjá Matz Sels var risa­stór fyr­ir okk­ur.

Leik­menn­irn­ir stóðu sig vel. Þetta voru góðar víta­spyrn­ur og Matz reynd­ist okk­ur stór­kost­lega,” sagði Espír­ito Santo á frétta­manna­fundi eft­ir leik­inn í gær­kvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert