Brighton vann mjög dramatískan sigur á Fulham, 2:1, í 28. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu í dag.
Brighton er komið í sjötta sæti ensku deildarinnar með 46 stig en Fulham er í níunda sæti með 42.
Raul Jiménez kom Fulham yfir 35. mínútu en Jan Paul van Hecke jafnaði metin sex mínútum síðar, 1:1.
Joao Pedro skoraði síðan sigurmark Brighton á áttundu mínútu uppbótartíma seinni hálfleiks úr vítaspyrnu, 2:1, og tryggði Brighton mjög svo mikilvægan sigur.
Crystal Palace hafði þá betur gegn Ipswich, 1:0, á Selhurst Park.
Palace er nú búið að vinna þrjá leiki í röð í deildinni og fjóra í öllum keppnum. Liðið er komið í ellefta sæti með 39 stig en Ipswich er með 17 stig í 18. sæti.
Ismalia Sarr skoraði sigurmarkið á 82. mínútu leiksins.