Draumaendurkoma Saka hjá Arsenal

Bukayo Saka fagnar í kvöld.
Bukayo Saka fagnar í kvöld. AFP/Glyn Kirk

Arsenal hafði bet­ur gegn Ful­ham, 2:1, í 30. um­ferð ensku úr­vals­deild­ar karla í knatt­spyrnu á Emira­tes-leik­vang­in­um í London í kvöld. 

Arsenal er komið með 61 stig í öðru sæti, níu stig­um á eft­ir toppliði Li­verpool sem á leik til góða. Ful­ham er í átt­unda sæti með 45. 

Arsenal heim­sæk­ir Evert­on í næstu um­ferð en Ful­ham fær Li­verpool í heim­sókn.

Arsenal varð fyr­ir þó nokkru áfalli snemma í leikn­um þegar miðvörður og lyk­ilmaður liðsins Gabriel meidd­ist og þurfti að fara af velli. Arsenal á leik gegn Evr­ópu­meist­ur­um Real Madrid eft­ir ná­kvæm­lega viku og er lík­legt að Gabriel missi af hon­um. 

Gabriel lykilmaður Arsenal gengur svekktur af velli meiddur.
Gabriel lyk­ilmaður Arsenal geng­ur svekkt­ur af velli meidd­ur. AFP/​Glyn Kirk

Mikel Mer­ino kom Arsenal yfir á 37. mín­útu. Þá fékk hann send­ingu frá Et­h­an Nwaneri og setti bolt­ann í netið eft­ir viðkomu í Jor­ge Cu­enca, 1:0. 

Á 66. mín­útu sneri Bukayo Saka aft­ur á völl­inn eft­ir meiri en þriggja mánaða fjar­veru. Hann kom inn á við mikið lófa­klapp stuðnings­manna Arsenal og það tók hann aðeins sjö mín­út­ur að skora. 

Þá keyrði Gabriel Mart­inelli upp völl­inn og sendi á Mer­ino sem gaf hann fyr­ir aft­ur á Mart­inelli sem fram­lengdi bolt­an­um með hæln­um á Saka sem stangaði hann inn, 2:0, og drauma­end­ur­koma staðreynd. 

Rodrigo Mun­iz minnkaði mun­inn fyr­ir Ful­ham í blá­lok­in en það reynd­ist of seint, 2:1. 

Mikel Merino fagnar markinu sínu.
Mikel Mer­ino fagn­ar mark­inu sínu. AFP/​Glyn Kirk
Arsenal 2:1 Ful­ham opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert