Kólumbíski knattspyrnumaðurinn Yerson Mosquera hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Wolverhampton Wanderers.
Mosquera, sem er 23 ára miðvörður, hefur aðeins spilað fimm leiki fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni, alla í upphafi þessa tímabils.
Hann varð svo fyrir því óláni að slíta krossband í hné í september sem heldur Mosquera frá keppni út tímabilið.
Brasilíski miðjumaðurinn Joao Gomes hefur sömuleiðis skrifað undir nýjan fimm ára samning við Úlfana, sem eru komnir langt með að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu enda tólf stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir góðan sigur á West Ham United í gærkvöldi.