VAR í aðalhlutverki er Chelsea sigraði

Chel­sea lagði Totten­ham, 1:0, í loka­leik 30. um­ferðar ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar karla í knatt­spyrnu í kvöld.

Með sigr­in­um fer Chel­sea upp í fjórða sætið með 52 stig. Totten­ham er áfram í 14. sæti með 34 stig.

Strax á fyrstu mín­útu leiks­ins slapp Nicolas Jackson, fram­herji Chel­sea, í gegn en Guglielmo Vicario, markvörður Totten­ham, varði frá hon­um. Í kjöl­farið hreinsaði Micky van de Ven bolt­ann í Jackson og þaðan í stöng­ina.

Leik­ur­inn róaðist í kjöl­farið. Chel­sea var meira með bolt­ann og komst í álit­leg­ar stöður en tókst ekki að reka smiðshöggið á þær sókn­ir.

Vicario varði stór­kost­lega frá Jadon Sancho á 45. mín­útu leiks­ins eft­ir góða send­ingu frá Pedro Neto. Staðan var marka­laus í hálfleik.

Það dró til tíðinda á 50. mín­útu þegar Arg­entínumaður­inn Enzo Fern­and­ez kom Chel­sea yfir. Það kom eft­ir fyr­ir­gjöf frá Cole Pal­mer sem rataði á Fern­and­ez sem stangaði bolt­ann í netið, 1:0.

Skömmu síðar skoraði Moises Caicedo annað mark Chel­sea en eft­ir langa VAR-skoðun kom í ljós að Levi Colwill var rang­stæður í aðdrag­and­an­um og markið því ekki gilt.

Varamaður­inn Pape Sarr jafnaði met­in fyr­ir Totten­ham á 69. mín­útu eft­ir svaka­legt skot af um 30 metra færi. Hins veg­ar var markið dæmt af þegar kom í ljós í VAR-skoðun að Sarr braut á Caicedo í aðdrag­anda marks­ins.

Heung-Min Son fékk gott færi til að jafna met­in und­ir lok leiks­ins eft­ir und­ir­bún­ing frá Brenn­an John­son en Robert Sanchez gerði frá­bær­lega í því að verja frá hon­um.

Nær komst Totten­ham ekki og lok­aniðurstaða því 1:0-sig­ur Chel­sea. 

Chel­sea 1:0 Totten­ham opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert