Handtekinn fyrir að löðrunga Grealish

Jack Grealish og Mason Mount í Manchester-slagnum í gær.
Jack Grealish og Mason Mount í Manchester-slagnum í gær. AFP/Darren Staples

Stuðnings­maður karlaliðs Manchester United í knatt­spyrnu, 20 ára karl­maður, hef­ur verið hand­tek­inn grunaður um að löðrunga Jack Greal­ish, leik­mann Manchester City, eft­ir leik liðanna á Old Trafford í ensku úr­vals­deild­inni í gær.

Er Greal­ish gekk af velli eft­ir marka­laust jafn­tefli liðanna mætti hon­um stuðnings­maður Man. United neðst við Stret­ford End stúk­una á Old Trafford og sló hann í and­litið.

Lög­regl­an í Manchester hef­ur þegar hand­tekið mann­inn sem er sakaður um lík­ams­árás. Mun hann þurfa að mæta fyr­ir rétt í júlí.

Sam­kvæmt Daily Mail er ekki talið að Greal­ish hafi sakað af högg­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka