Arsenal tekur á móti Evrópumeisturum Real Madrid í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar karla í knattspyrnu á Emirates-leikvanginum í Lundúnum klukkan 19 í kvöld.
Þetta er í fyrsta sinn sem liðin mætast í keppnisleik síðan í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2006.
Þar vann Arsenal samanlagt, 1:0, en sigurmark liðsins kom í fyrri leiknum á Santiago Bernabeu og var þar Thierry Henry að verkum.
Þá voru bæði lið stjörnum prýdd en í liði Arsenal voru til að mynda Henry, Cesc Fábregas og Freddie Ljunberg og hjá Real Madrid voru Zinedine Zidane, brasilíski Ronaldo og David Beckham svo eitthvað sé nefnt.