Tímabilið búið hjá miðjumanninum

Ryan Christie í leik Bournemouth gegn Everton.
Ryan Christie í leik Bournemouth gegn Everton. AFP/Paul Ellis

Skot­inn Ryan Christie leik­ur ekki meira með enska úr­vals­deild­arliðinu Bour­nemouth á leiktíðinni vegna meiðsla.

Christie fór af velli á 58. mín­útu í leik Bour­nemouth gegn Ipswich 2. apríl síðastliðinn. Þarf miðjumaður­inn á aðgerð að halda vegna meiðsl­anna og verður frá næstu vik­urn­ar.

Leikmaður­inn hef­ur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú til viðbót­ar í 29 leikj­um á leiktíðinni en hann kom til Bour­nemouth árið 2021 frá Celtic í heima­land­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert