Tryggðu Englandi fimmta sætið

Leikmenn Arsenal fagna einu markanna í stórsigrinum á Real Madrid …
Leikmenn Arsenal fagna einu markanna í stórsigrinum á Real Madrid í gærkvöld. AFP/Adrian Dennis

Með stór­sigri sín­um á Evr­ópu­meist­ur­um Real Madrid í gær­kvöld, 3:0, tryggði Arsenal ensk­um fé­lög­um viðbót­ar­sæti í Meist­ara­deild karla í fót­bolta á næsta keppn­is­tíma­bili.

Eng­land stóð mjög vel að vígi fyr­ir leik­inn og með sigr­in­um varð gull­tryggt að enska úr­vals­deild­in fengi annað þeirra tveggja sæta sem voru á lausu fyr­ir keppn­ina 2025-26. 

Þar með er ljóst að fimm efstu lið ensku deild­ar­inn­ar fara í Meist­ara­deild­ina næsta haust. Li­verpool (73 stig), Arsenal (62), Nott­ing­ham For­est (57), Chel­sea (53) og Newcastle (53) eru núna í fimm efstu sæt­un­um en Manchester City (52) og Ast­on Villa (51) eiga mesta mögu­leika á að veita þeim keppni í síðustu sjö um­ferðum deild­ar­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert