„Þeim líður ekki vel“

Phil Foden og Jack Grealish á æfingu með enska landsliðinu.
Phil Foden og Jack Grealish á æfingu með enska landsliðinu. AFP/Oli Scarff

Pep Guar­di­ola, knatt­spyrn­u­stjóri Manchester City, seg­ir Phil Fod­en og Jack Greal­ish vera niður­dregna eft­ir að hafa lent illa í stuðnings­mönn­um Manchester United í borg­arslagn­um í ensku úr­vals­deild­inni um síðustu helgi.

Stuðnings­menn Man. United sungu níðsöngva um móður Fod­ens og einn stuðnings­maður sló Greal­ish í and­litið og var svo hand­tek­inn.

Man. United for­dæmdi gjörðir stuðnings­manna sinna en enska knatt­spyrnu­sam­bandið hef­ur ákveðið að kæra fé­lagið ekki.

„Þeim líður ekki vel en við höld­um áfram. Þetta er klikkaður heim­ur, það fer ekki fram­hjá nein­um. Þetta snýst ekki um United.

Þetta end­ur­spegl­ar ekki vanda­mál ákveðins fé­lags eða deild­ar inn­an heims­fót­bolt­ans. Þetta er stærra og meira en þess­ar mann­eskj­ur. Þetta ger­ist alls staðar,“ sagði Guar­di­ola á frétta­manna­fundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert