Framherji United frá út tímabilið

Joshua Zirkzee gengur meiddur af velli.
Joshua Zirkzee gengur meiddur af velli. AFP/Andy Buchanan

Hol­lend­ing­ur­inn Jos­hua Zirkzee mun ekki taka frek­ari þátt með enska knatt­spyrnu­fé­lag­inu Manchester United á tíma­bil­inu. 

Þetta staðfesti stjóri liðsins Rú­ben Amorim á blaðamanna­fundi fyr­ir seinni leik­inn gegn Lyon í átta liða úr­slit­um Evr­ópu­deild­ar­inn­ar í dag. 

Zirkzee meidd­ist í 4:1-tapi United fyr­ir Newcastle síðastliðinn sunnu­dag en hann skoraði meðal ann­ars í jafn­tefl­inu við Lyon, 2:2, í fyrri leik liðanna. 

Manchester United fær Lyon í heim­sókn annað kvöld og verður án Zirkzee sem hef­ur verið með skárri mönn­um liðsins á tíma­bil­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert