Dramatík í gríðarlega mikilvægum sigri Chelsea

Chelsea-menn fagna sigurmarki Pedro Neto.
Chelsea-menn fagna sigurmarki Pedro Neto. AFP/Glyn Kirk

Chel­sea kom til baka og vann gríðarlega mik­il­væg­an útisig­ur á Ful­ham, 2:1, í ensku úr­vals­deild karla í knatt­spyrnu á Cra­ven Cotta­ge í London í dag. 

Chel­sea er með 57 stig í fimmta sæti deild­ar­inn­ar og í mik­illi Meist­ara­deild­ar­bar­áttu en fimm lið kom­ast í Meist­ara­deild­ina á næstu leiktíð. Ful­ham er í ní­unda sæti með 48. 

Alex Iwobi kom Ful­ham yfir á 20. mín­útu leiks­ins, 1:0, og var það staðan í hálfleik. 

Ungi strák­ur­inn Tyr­ique Geor­ge jafnaði met­in fyr­ir Chel­sea á 83. mín­útu, 1:1, og und­ir blálok leiks skoraði Pedro Neto sig­ur­markið, 1:2. 

Ful­ham heim­sæk­ir Sout­hampt­on í næstu um­ferð en Chel­sea fær Evert­on í heim­sókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert